| Sf. Gutt

Á eftir að sakna kennslustunda


Stefan Bajcetic segist eiga eftir að sakna daglegra kennslustunda Thiago Alcantara í fagra leiknum. Eftir að Thiago tilkynnti að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna skrifaði Stefan þetta á Instagram síðu sína. ,,Ég á eftir að sakna daglegra kennslustunda þinna í hvernig á að iðka þessa íþrótt."


Fáir hafa spilað knattspyrnu betur síðasta áratuginn eða svo en Thiago. Hann hefur líka án nokkurs vafa kennt ungu leikmönnum Liverpool margt. Í það minnsta benda orð Stefan til þess og ekki þarf að efast um þau.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan