| Sf. Gutt

Federico meiddur

Federico Chiesa er eitthvað meiddur og spilar ekki móti Crystal Palace um helgina. Hann var ekki heldur í liðshópi Liverpool á móti Bologna vegna meiðsla og hann er ekki búinn að ná sér. 

Ítalinn er ekki alveg kominn í gang eftir að hann kom til Liverpool. Hann var nokkuð meiddur á síðustu leiktíð og þarf greinilega lengri tíma til að ná sér í gott stand. Federico er búinn að koma við sögu í þremur leikjum hjá Liverpool hingað til á leiktíðinni. 

Eftir helgina fer í hönd landsleikjahlé. Vonandi dugar það Federico til að ná sér góðum þannig að verði tilbúinn til leiks eftir að landsleikjum lýkur. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan