| Heimir Eyvindarson
Luis Suarez verður ekki með gegn Newcastle annað kvöld. Kenny Dalglish verður því að treysta á að aðrir leikmenn rísi upp og taki af skarið. Þar lítur hann einna helst til Maxi.
Reyndar hefur Suarez ekki skorað mikið á leiktíðinni, frekar en aðrir í Liverpool, en hann hefur þó reynt og eitt er víst að það er alltaf hætta þegar hann er með boltann. Maxi Rodriguez er hinsvegar markahæstur leikmanna Liverpool í vetur, með 4 mörk!
Maxi hefur aðeins byrjað inn á í 8 leikjum það sem af er leiktíðar og einu sinni komið inn á sem varamaður. Það hefur þó nægt honum til þess að skora þessi fjögur mörk. Fari maður aðeins aftar í tímann í tölfræðinni sést að Argentínumaðurinn hefur skorað 11 mörk í síðustu 12 leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliðinu. Það verður að teljast nokkuð góður árangur hjá kantmanni.
,,Kannski hefur Maxi svörin við vandræðum okkar. Ætli ég láti hann ekki sjá um skotæfinguna í dag", sagði Kenny Dalglish í léttum tón á blaðamannafundi í gær.
,,En að öllu gamni slepptu þá hefur Maxi staðið sig mjög vel. Hann hefur ekki fengið að spila eins mikið og hann vildi, en hann hefur nýtt sín tækifæri mjög vel. Hann er góður og snjall leikmaður sem veit hvað hann er að gera inni á vellinum. Hann má vera stoltur af sínu framlagi til liðsins."
TIL BAKA
Kenny treystir á Maxi

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed Salah sló metið! -
| Sf. Gutt
Dregið í Meistaradeildinni -
| Heimir Eyvindarson
Joe Gomez úr leik fram á vor -
| Heimir Eyvindarson
Tvö töpuð stig á Villa Park -
| Heimir Eyvindarson
Spáð í spilin - Erfitt verkefni á Villa Park í kvöld -
| Heimir Eyvindarson
Enn eitt metið í hættu í kvöld -
| Sf. Gutt
Sigur í kveðjuleik Jürgen Norbert Klopp! -
| Sf. Gutt
Í minningu Bob Paisley -
| Mummi
Stórviðburður í vændum – Miðasala hafin á árshátíð Liverpoolklúbbsins -
| Sf. Gutt
Yfirlýsing Liverpool félaganna
Fréttageymslan