Fernando Morientes
- Fæðingardagur:
- 05. apríl 1976
- Fæðingarstaður:
- Cilleros, Spáni
- Fyrri félög:
- Albacete, Zaragoza, Real Madrid, Monaco (í láni)
- Kaupverð:
- £ 6300000
- Byrjaði / keyptur:
- 15. janúar 2005
- Upplýsingar á LFChistory.net
- Skoða
Morientes fæddist í Cilleros í Cacereshéraði á Spáni árið 1976, nánar tiltekið þann 5 apríl. Hann byrjaði ferilinn hjá nokkrum litlum liðum, Diana, Bar Cuatro, Refugio Dorado, Citroen og Sonseca, allt þar til hann endaði hjá Albacete árið 1993. Og það var einmitt hjá Albacete þar sem hjólin byrjuðu að snúast fyrir Morientes. Hann spilaði tvö heil tímabil fyrir þá og skoraði alls 5 mörk í 22 leikjum, þá aðeins 18 ára gamall. Frammistaða Morientes vakti athygli Real Zaragoza sem á endanum ákvað að fjárfesta í þessum unga leikmanni, fjárfesting sem þeir áttu ekki eftir að sjá eftir. Hjá Zaragoza blómstraði Morientes, skoraði 13 mörk í aðeins 29 leikjum á sínu fyrsta tímabili og skildi menn gapandi yfir snilld þessa unga markaskorara. Árið eftir bætti hann um betur og skoraði 15 mörk í 37 leikjum. Morientes var nú farinn að vekja athygli sterkustu liða í Evrópu, en það var aldrei spurning þegar Real Madrid fór að spyrjast fyrir um hann.
Morientes var orðinn leikmaður Real Madrid leiktíðina 1997/98, þar sem hann átti eftir að vinna spænska meistaratitilinn tvisvar og sjálfa Meistaradeildina þrisvar. Hann spilaði alls 179 leiki fyrir Real Madrid í spænsku deildinni og skoraði 72 mörk. Flest mörk skoraði hann leiktíðina 98/99, en þá tókst honum að hrella mótherja Real Madrid með 19 mörkum. Meistaradeildin fékk líka að kynnast markheppni Morientes, en þar skoraði hann alls 19 mörk þann tíma sem hann var hjá Los Merengues. Frábær frammistaða Morientes varð til þess að hann var kallaður til liðs við landsliðið fyrir leik Spánverja og Svía árið 1998. Byrjunin með landsliðinu var draumi líkust, tvö mörk á fyrstu fimm mínútunum fyrir Morientes, og 4-0 sigur. Þetta var þó ekki í fyrsta skipti sem hann skoraði í sínum fyrsta leik, en hann hefur skorað í sínum fyrsta leik fyrir Albacete, Zaragoza, Real Madrid, u18 lið Spánar, U20 ára lið Spánar og eins og áður kom fram spænska landsliðinu sjálfu. Ótrúleg tölfræði hjá manni sem átti eftir að festa sig í sessi í spænska landsliðinu komandi ár.
Brátt fór þó að halla undan fæti hjá Morientes. Við komu Ronaldo til Real Madrid missti Morientes byrjunarliðssæti sitt leiktíðina 02/03, byrjaði aðeins 2 leiki, kom inná 16 sinnum og skoraði 5 mörk. Hann var ekki lengur lykilmaður í spænska landsliðinu, og ljóst var að hann yrði að gera eitthvað til að bjarga ferlinum. Monaco spurðist fyrir um Morientes, og fengu hann að lokum að láni út leiktíðina. Seinna átti Real Madrid eftir að sjá eftir því að hafa lánað hann, eða að minnsta kosti að hafa ekki sett klásúlu í samninginn að hann mætti ekki spila gegn þeim. Morientes varð lykilmaður í liði Monaco, skoraði 10 mörk í frönsku deildinni og 9 mörk í Meistaradeildinni, m.a. sigurmörk gegn ekki minni liðum en Chelsea og Real Madrid. Monaco var að lokum stöðvað í úrslitaleiknum gegn Porto. Heima fyrir stóð Monaco sig einnig vel, leiddi deildina mest allt tímabilið, en missti dampinn í lokinn og endaði í 3. sæti. Morientes var valinn besti framherji Evrópu fyrir frammistöðu sína þetta árið, þá sérstaklega fyrir frábæra frammistöðu í Meistaradeildinni.
Hér er síðan listi yfir alla þá helstu titla sem Morientes hefur unnið á sínum ferli.
2 Spánarmeistaratitlar (2000-01, 2002-03) 2 spænskir bikartitlar (1997, 2001) 3 Meistaradeildartitlar (1997-98, 1999-00, 2001-02)
Mikil þörf er á markaskorara hjá Liverpool, þar sem aðeins Baros af núverandi sóknarmönnum hefur sannað sig á hæsta stigi. Pongolle og Mellor eru ennþá ungir og eru ekki nógu góðir núna til að bera hitann og þungann af sóknarleik Liverpool. Morientes er hins vegar kjörinn í það hlutverk. Hann er einn besti skallamaðurinn í boltanum, er með tvo fætur og kann að nota þá báða. Hann hefur margoft sannað sig, bæði í Meistaradeildinni og í einni af sterkustu deild veraldar, þeirri spænsku. Hann ætti ekki að eiga í erfiðleikum að aðlagast á Englandi, enda leikstíll hans oft talinn vera mjög líkur þeim enska.
Tölfræðin fyrir Fernando Morientes
Tímabil | Deild | Bikar | Deildarbikar | Evrópa | Annað | Alls |
---|---|---|---|---|---|---|
2004/2005 | 13 - 3 | 0 - 0 | 2 - 0 | 0 - 0 | 0 - 0 | 15 - 3 |
2005/2006 | 28 - 5 | 5 - 1 | 1 - 0 | 10 - 3 | 2 - 0 | 46 - 9 |
Samtals | 41 - 8 | 5 - 1 | 3 - 0 | 10 - 3 | 2 - 0 | 61 - 12 |
Fréttir, greinar og annað um Fernando Morientes
Fréttir
-
| Sf. Gutt
Enn skorar Fernando -
| AB
Fernando Morientes ósáttur við hörkuna -
| Sf. Gutt
Góður kostur -
| Sf. Gutt
Rafael hrósar Nando við brottför hans -
| Grétar Magnússon
Nando seldur til Valencia -
| AB
Real Betis og Valencia vilja Morientes -
| Grétar Magnússon
Morientes viðurkennir að hann gæti verið á förum -
| Grétar Magnússon
Nando vonar að Robbie fái nýjan samning -
| HI
"Morientes þarf tíma" -
| HI
Benítez styður Morientes -
| HI
Fernando Morientes ekki með í næstu tveimur leikjum -
| Gísli Kristjánsson
Nando: "Ég hef aðlagast" -
| Gísli Kristjánsson
Rafa hrósar markaskoraranum Fernando -
| Hjörtur Örn Eysteinsson
Nando: Við getum ennþá unnið titilinn! -
| SSteinn
Nando ekkert að fara -
| HI
Fernando Morientes með á laugardaginn -
| AB
Fernando Morientes í nærmynd -
| HI
Fernando hungrar í velgengni -
| SSteinn
Fernando Morientes og framtíð hans? -
| SSteinn
Nando ekki með á morgun
Skoða önnur tímabil